Með pylsuvagn í fertugsafmælinu 5. júlí 2007 04:15 Hjónin voru í sérhönnuðum diskógöllum sem saumaðir voru í tilefni af fertugsafmælinu. mynd/Erling.is „
Ég vildi hafa svona diskófíling í þessu,” segir Ragna Lóa Stefánsdóttir, eiginkona Hermanns Hreiðarssonar og fyrrum knattspyrnukona, um fertugsafmælið sitt sem hún fagnaði ásamt 150 gestum í hinum gyllta sal Hótel Borgar um helgina. Sérstakt hattaþema var í boðinu enda er Ragna Lóa að eigin sögn mikil áhugamanneskja um höfuðföt. Sjálf var hún í glimmersamfestingi og að sjálfsögðu með hatt í stíl. Fötin voru hönnuð af þeim Hörpu Einarsdóttur og Selmu Ragnarsdóttur. „Ég var búin að heyra af þeim og langaði að prófa eitthvað nýtt,” segir Ragna Lóa um tildrög þess að hún fékk fyrrnefnda hönnuði í lið með sér. „Ég var mjög ánægð með útkomuna en stelpurnar hönnuðu líka diskógalla á Hemma sem var ekki síður flottur.” Aðspurð um hverjir hefðu skarað fram úr hvað höfuðföt varðar nefnir hún knattspyrnubræðurna Jóhannes Karl og Bjarna Guðjónssyni. „Þeir voru sérstaklega frumlegir og lögðu sig mikið fram,” segir Ragna en Jóhannes Karl gekk víst svo langt að líma hattinn fastan á höfuðið. Skemmtiatriðin í boðinu voru ekki af verri endanum. „Það var fullt af stórgóðum heimatilbúnum skemmtiatriðum og ég fékk Sigríði Klingenberg til að koma og spá fyrir gestum,” segir Ragna Lóa sem hafði þó ekki tíma til að láta spá fyrir sér sjálfri. „Svo kom aldrei annað til greina en að fá Magna til að syngja. Hann er stórkostlegur skemmtikraftur enda vorum við bæði komin upp á svið með honum áður en við vissum af.” Þess má geta að Magni söng einnig í þrítugsafmæli Hermanns fyrir nokkrum árum síðan. „Hann er í miklu uppáhaldi hjá okkur hjónum.” Það er ekki hægt að segja annað en að veitingarnar hafi verið í óvenjulegri kantinum en gestum var boðið upp á rjúkandi heitar pylsur með öllu. „Ég er ekki mikið fyrir að setjast niður og eyða tíma í að borða. Þess vegna ákvað ég að hafa bara miðnætursnarl og þar sem maðurinn minn er mikið fyrir pylsur drógum við bara pylsuvagn inn á svæðið. Þetta var heilmikil stemning.”
Mest lesið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Sjá meira