Samráð um 28 milljóna króna hámark í auglýsingar 26. mars 2007 11:55
Stjórnmálaflokkarnir hyggjast síðar í dag kynna samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað flokkanna fyrir þingkosningarnar eftir sjö vikur. Samkomulag liggur fyrir í öllum megindráttum. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 verður sett hámark á birtingarkostnað auglýsinga og miðað við 28 milljónir króna á hvern flokk samtals í fjölmiðlum á landsvísu. Jafnframt er gert ráð fyrir að eftirlitsaðili fylgist með því að samkomulagið sé ekki brotið og birti reglulega tölur fram að kosningum um birtingarkostnað hvers flokks. Samkomulagið þýðir að auglýsingakostnaður flokka getur orðið nokkru hærri en 28 milljónir því hvorki kostnaður við gerð auglýsinga né birtingu þeirra í svæðisbundnum fjölmiðlum er innifalinn í samkomulaginu. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2 var talsverður munur á hugmyndum flokkanna um hvaða hámark ætti að setja. Þannig vildu sjálfstæðismenn, vinstri grænir og frjálslyndir miða við tölum í kringum 20 milljónir króna en Samfylkingin og Framsóknarflokkur voru með hugmyndir um hámark á bilinu 30 til 35 milljónir króna. Niðurstaða um 28 milljóna króna hámark þýðir að verulega mun draga úr auglýsingakostnaði miðað við síðustu þingkosningar en þá er talið að einstaka flokkar hafi varið allt að 80 milljónum króna í auglýsingar.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira