Innlent

Skjaldborg um forstjóra Baugs

MYND/GVA

Vitnisburður aðila sem vilhallir eru undir Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóra Baugs, snerist um að slá skjaldborg um forstjórann og afmá fingraför hans af málinu. Þetta sagði Sigurður Tómas Magnússon saksóknari í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann sagði Jón Ásgeir og Tryggva Jónsson fyrrverandi aðstoðarforstjóra hafi sviðsett mótsaganarkennda frásögn af aðkomu Jóns að meintum ólöglegum lánveitingum.

Lánveitingarnar eru sagðir stangast á við hlutafélagalög. Baugsmálið hefði ekki orðið að veruleika ef Baugur hefði ekki verið hlutafélag. Jón Ásgeir er ákærður fyrir að hafa látið Baug lána Kristínu systur sinni og félögunum Gaumi og Fjárfari fjármuni. Þeir voru ætlaðir til að kaupa hlutafé í Baugi.

Sigurður sagði augljóst að Jón Ásgeir bæri ábyrgð á lánveitingunum, en ekki fyrirtækið sjálft, gjaldkeri þess eða bókari. Jón hafi setið beggja vegna borðsins. Fram hefði komið fullgild sönnun fyrir aðild hans að Fjárfari.

Vitni hafi reynt að villa fyrir með því að viðurkenna ekki aðkomu að rekstri félagsins, þrátt fyrir að vera skráði eigendur.

Ákæruvaldið dregur ekki í efa að umrædd lán tengdust viðskiptum. Öll lán tengist viðskiptum. Hins vegar sé langur vegur frá því að umrædd lán teldust venjuleg viðskiptalán. Ef Baugur væri banki, væru lánveitingarnar eðlilegar. Baugur var hins vegar á þessum tíma verslunarfyrirtæki.

Saksóknari benti á að lán til Kristínar, Fjárfars og Gaums vegna hlutafjárútboðs í Baugi hefði verið fært á viðskiptareikning þeirra. Aðilarnir hafi ekki greitt fyrir bréfin á réttum tíma, en notið allra réttinda sem þau færði, eins og arðgreiðslna af þeim.

Sigurður lýkur málflutningi sínum um meintar ólöglegar lánveitingar eftir hádegið. Þá tekur við þriðji kafli ákærunnar þar sem Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir ýmis konar bókhaldsbrot í rekstri Baugs.

Verjendur flytja síðan mál sín á miðvikudag og fimmtudag, en þá verður málið lagt í dóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×