Skjaldborg um forstjóra Baugs 26. mars 2007 12:43 MYND/GVA
Vitnisburður aðila sem vilhallir eru undir Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóra Baugs, snerist um að slá skjaldborg um forstjórann og afmá fingraför hans af málinu. Þetta sagði Sigurður Tómas Magnússon saksóknari í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann sagði Jón Ásgeir og Tryggva Jónsson fyrrverandi aðstoðarforstjóra hafi sviðsett mótsaganarkennda frásögn af aðkomu Jóns að meintum ólöglegum lánveitingum. Lánveitingarnar eru sagðir stangast á við hlutafélagalög. Baugsmálið hefði ekki orðið að veruleika ef Baugur hefði ekki verið hlutafélag. Jón Ásgeir er ákærður fyrir að hafa látið Baug lána Kristínu systur sinni og félögunum Gaumi og Fjárfari fjármuni. Þeir voru ætlaðir til að kaupa hlutafé í Baugi. Sigurður sagði augljóst að Jón Ásgeir bæri ábyrgð á lánveitingunum, en ekki fyrirtækið sjálft, gjaldkeri þess eða bókari. Jón hafi setið beggja vegna borðsins. Fram hefði komið fullgild sönnun fyrir aðild hans að Fjárfari. Vitni hafi reynt að villa fyrir með því að viðurkenna ekki aðkomu að rekstri félagsins, þrátt fyrir að vera skráði eigendur. Ákæruvaldið dregur ekki í efa að umrædd lán tengdust viðskiptum. Öll lán tengist viðskiptum. Hins vegar sé langur vegur frá því að umrædd lán teldust venjuleg viðskiptalán. Ef Baugur væri banki, væru lánveitingarnar eðlilegar. Baugur var hins vegar á þessum tíma verslunarfyrirtæki. Saksóknari benti á að lán til Kristínar, Fjárfars og Gaums vegna hlutafjárútboðs í Baugi hefði verið fært á viðskiptareikning þeirra. Aðilarnir hafi ekki greitt fyrir bréfin á réttum tíma, en notið allra réttinda sem þau færði, eins og arðgreiðslna af þeim. Sigurður lýkur málflutningi sínum um meintar ólöglegar lánveitingar eftir hádegið. Þá tekur við þriðji kafli ákærunnar þar sem Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir ýmis konar bókhaldsbrot í rekstri Baugs. Verjendur flytja síðan mál sín á miðvikudag og fimmtudag, en þá verður málið lagt í dóm.
Mest lesið Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Þorgerði hafa borist alvarlegar hótanir Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Fleiri fréttir Þorgerði hafa borist alvarlegar hótanir Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Sjá meira