Fór fram á gögn um sölu fasteigna á Keflavíkurflugvelli 5. desember 2007 13:51 MYND/GVA
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri - grænna, fór fram á það við Sturlu Böðvarsson, forseta Alþingis, og forsætisnefnd að aflað yrði allra gagna varðandi sölu eigna á Keflavíkurflugvelli. Sagðist Atli hafa upplýsingar um að eignir þar hefðu verið seldar á undirverði. Sturla Böðvarsson tók til máls við upphaf þingfundar og gerði athugasemd við ummæli Atla á þingi í gær. Þar sagðist meðal annars Atli líta svo á að Ríkisendurskoðun væri að leggja stein í götu sína með því að afhenda honum ekki gögn um sölu á eignum á gamla varnarliðssvæðinu. Benti Sturla á að Atli hefði átt að leggja fram beiðni til forsætisnefndar um þetta sem hefði þá samband við Ríkisendurskoðun. Atli sagði einkennilegt að hann fengi tiltal í málinu og sagði það grunnskyldu sína sem þingmanns að gæta að almannaeignum. Hann hefði farið í gegnum Alþingi en reyndar ekki forsætisnefnd. Sagði hann eignir á Keflavíkurflugvelli hafi verið seldar á óeðlilegu verði og menn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefðu setið beggja vegna borðs. Sagði hann ástæðu til að ætla að maðkur væri í mysunni. Undir kröfu Atla tóku flokksbræður hans, Ögmundur Jónasson, Jón Bjarnason og Streingrímur J. Sigfússon. Sögðu þeir að kallað hefði verið eftir gögnum í málinu í fjárlaganefnd og efnahags- og skattanefnd en við því hefði ekki verið orðið. Gagnrýndu þeir fjármálaráðherra fyrir að neita að afhenda þinginu gögn. Árni Mathiesen fjármálaráðherra sagði rangt að hann hefði neitað þinginu um gögn. Gögnin væru í höndum Ríkisendurskoðunar og að mati ríkisendurskoðanda væri um viðskiptamál að ræða sem ekki væri hægt að opinbera. Ríkisendurskoðandi hefði boðið nefndarmönnum á Alþingi að skoða gögnin um sölu eignanna. Töluverðar deilur hafa staðið um málið á Alþingi og því hefur enn ekki verið gengið til fyrirspurna. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, spurði síðan hvenær Ríkisendurskoðun hefði orðið milligöngumaður á milli löggjafarvaldsins og framkvæmdavaldsins. Benti hann á að stofnunin heyrði undir Alþingi en ekki framkvæmdavaldið. Taldi hann ærna ástæðu til þess að forsætisnefnd, sem væri eins konar stjórn Ríkisendurskoðunar, færi yfir það með hvaða hætti hlutir hefðu þróast í þessum efnum á síðustu misserum. Sakaði hann fjármálaráðherra um að nota Ríkisendurskoðun sem skjöld og framkvæmdavaldinu bæri að láta af hendi upplýsingar í málinu. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði furðulegt að verið væri að ræða málið efnislega undir liðnum fundarstjórn forseta. Fyrir lægi að forsætisráðherra hygðist flytja skýrslu um Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar á morgun að beiðni þingflokksformanna.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira