Íslandspóstur lætur kanna mál sveitarstjórans í Grímsey 5. desember 2007 12:02
Íslandspóstur hefur hrundið af stað athugun á því hvort sveitarstjórinn í Grímsey hefur stolið frá fyrirtækinu. Frumathugun á meintum stuldi hans frá Grímseyjarhreppi er að ljúka. Mál sveitarstjórans í Grímsey, Brynjólfs Árnasonar, verður umfangsmeira með hverjum deginum sem líður. Á morgun lýkur frumathugun á bókhaldi Grímseyjarhrepps en hreppsnefndarmenn hafa ásamt sérfræðingum skoðað gögnin og eru vísbendingar um að fjárdráttur sveitarstjórans sé umfangsmikill og margvíslegur eins og Stöð 2 hefur greint frá. Málið verður væntanlega á könnu lögreglunnar að þeirri athugun lokinni. En það er ekki nóg með að sveitarstjórinn hafi nýverið verið dæmdur fyrir stórfelldan stuld á olíu og sé grunaður um skjalafals og fjárdrátt eftir að hann tók við sveitarstjórastöðunni. Stöð 2 hefur nú fengið staðfest hjá Íslandspósti að fyrirtækið hafi ákveðið að láta fara fram innanhússrannsókn vegna umsvifa fyrirtækisins í Grímsey. Brynjólfur sveitarstjóri gegndi þar störfum fyrir Íslandspóst og ákvað fyrirtækið að láta gera þessa athugun eftir að mál sveitarstjórans urðu opinber. Hreppsskrifstofan í eynni var innsigluð síðastliðinn föstudag vegna gruns um óheiðarleika Brynjólfs og skömmu áður hafði hann játað sök fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra og hlotið skilorðsbundið fangelsi vegna stuldar á olíu. Eyjaskeggjar eru miður sín en íbúar í eynni eru tæplega 100. Segja viðmælendur Stöðvar 2 að óheiðarleiki sveitarstjórans hafi komið fólki í opna skjöldu.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira