Lífið

Öllu tjaldað fyrir hið fullkomna útlit

Reese Witherspoon þykir líta afar spengilega út þessa dagana en hún er nýskilin við leikarann Ryan Phillippe. Þau giftu sig árið 1999 og eiga tvö börn saman. Það er viðbúið að Reese verði gullfalleg í kvöld eftir dekur dagsins.
Reese Witherspoon þykir líta afar spengilega út þessa dagana en hún er nýskilin við leikarann Ryan Phillippe. Þau giftu sig árið 1999 og eiga tvö börn saman. Það er viðbúið að Reese verði gullfalleg í kvöld eftir dekur dagsins. MYND/Getty Images

Hollywoodstjörnurnar spara ekki aurana þegar kemur að því að líta sem best út í kvöld en þá verða Óskarsverðlaunin afhent. Eru þær óhræddar við að fara í dýrindis spa meðferðir til að öðlast hið fullkomna útlit.

Tracie Martyn er fræg í spa bransanum Vestanhafs fyrir andlitsmeðferðir sínar. Er hún með snyrtistofu í L. A. en flytur sig til New York til að vera til taks fyrir stóra kvöldið. Andlitsmeðferð hjá Tracie kostar 500 dollara, sem er jafngildi rúmra 33 þúsund króna. Leikkonurnar Meril Streep, Kate Winslet og Reese Witherspoon hafa nú þegar pantað tíma hjá henni. Tracie þessi er með þeim vinsælli í bransanum en Jennifer Aniston fór til hennar fyrir hátíðina í fyrra.

Gwyneth Palthrow og Paula Abdul fara til Sonyu Dakar í VIP meðferð sem felur í sér sérstaka Óskarsverðlauna andlitsmeðferð, LED ljósameðferð og súrefnis líkamsmeðferð.

Snyrtistofan Kinara Spa lokaði fyrir tveimur dögum til að geta þjónustað fastakúnna sína sem best. Meðal þeirra eru Óskarsverðlaunahafarnir Halle Berry og Hilary Swank. Fá fastakúnnarnir þessa sérstöku meðhöndlun svo paparazzi ljósmyndarnir komist ekki að þeim.

Jennifer Lopez, Demi Moore og Jessica Biel fara á Luxury Oscar Spa Retreat snyritstofuna. Þar fá þær nudd- og andlitsmeðferðir, naglaásetningu, tannhvíttun, litun og plokkun og hárgreiðslu fyrir kvöldið.

Það er því þétt skipaður dagurinn hjá stjörnunum sem fara á Óskarinn í kvöld því það skiptir öllu máli að líta sem best út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.