Lífsnauðsyn að fá meðferðarstofnun fyrir átröskunarsjúklinga 16. október 2007 18:59
Alma Geirdal, formaður Forma, félags sjúklinga með átröskun, segir lífsnauðsynlegt að koma á meðferðarstofnun fyrir sjúklinga með þennan lífshættulega sjúkdóm. Hún segir rétt að fárveik stúlka með átröskun hafi fengið tilboð um módelstörf hjá Eskimo. Talsmenn Eskimo segja að stúlkan hafi aldrei starfað hjá fyrirtækinu. Í heimildarmyndinni Lystin að lifa, sem fjallar um unga stúlku sem er langt leidd af átröskun, kemur fram að þegar hún var hvað veikust fékk hún tilboð um fyrirsætustörf hjá módelskrifstofunni Eskimo. Andrea Brabin, talsmaður Eskimo, sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hún segir að fyrirtækið hafi alltaf stutt við heilbrigt líferni og hollt mataræði hjá öllum skjólstæðingum sínum. Hún segir að fyrirtækið hafi staðið fyrir fræðslu um átröskun. Í yfirlýsingu frá Eskimo segir m.a. eftirfarandi: "Mikil viðhorfsbreyting hefur orðið innan tískuiðnaðarins á undanförnum árum til átröskunarsjúkdóma. Áhugi margra af helstu tískuhönnuðum heims á mjög grönnum fyrirsætum var lengi svartur blettur á tískuheiminum, en margir áhrifamestu aðilarnir í greininni hafa sagt þeim viðhorfum stríð á hendur. Arna Þórsdóttir starfar ekki sem fyrirsæta hjá Eskimo og hefur aldrei gert. Eskimo leitar hinsvegar að fólki í auglýsingar og myndatökur af ýmsu tagi alla daga og því er alls ekki óeðlilegt að starfsmaður Eskimo hafi á einhverjum tíma haft samband við Örnu, eins og þúsundir annarra á undanförnum árum." Höfundar heimildarmyndarinnar segja að fjölmiðlar hafi mótandi áhrif á ungar konur og hvetji þær jafnvel til að daðra við átröskun og jafnvel lotugræðgi. Alma Geirdal, talsmaður félags sjúklinga með átröskun, segir að kerfið þurfi að bæta sig verulega því hér sé um lífshættulegan sjúkdóm að ræða. Nauðsynlegt sé að koma á fót meðferðarstofnun fyrir átröskunarsjúklinga, annars verði engin breyting á.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Sjá meira