Sjö vítisenglum synjað um leyfi til landgöngu 2. nóvember 2007 22:12 Vítisenglarnir ætluðu að samfagna með félögum sínum í Fáfni sem fagnar ellefu ára afmæli sínu um þessar mundir. MYND/Rósa
Íslensk lögregluyfirvöld synjuðu sjö norrænum félögum í vélhjólasamtökunum Hell's Angels um leyfi til landgöngu við komu þeirra til landsins í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að fólkið, sem kom hingað til lands með tveimur vélum frá Noregi, hafi ætlað að sækja veislu, sem vélhjólaklúbburinn Fafner MC-Iceland hefur boðað til í miðborg Reykjavíkur um helgina. Heimildir Vísis frá því fyrr í kvöld um að allt að fimmtán vítisenglar hafi verið handteknir við komuna til landsins virðast því ekki hafa verið á rökum reistar, heldur hafi þeir verið sjö. Í tilkynningunni segir einnig að lögregla hafi fylgt settum reglum þegar fólkinu var synjað um landvist. „Leiðbeiningarskyldu skv. 25. gr. laga um útlendinga nr. 96, 2002 um heimildir viðkomandi til að leita sér aðstoðar lögmanns hefur verið gætt, en umræddir aðilar hafa til þessa kosið að nýta sér ekki þann rétt." Þá segir að aðgerðum lögreglu sé ekki lokið. „Fylgst verður með komuflugi til landsins um helgina sem og fyrirhuguðu samkvæmi Fafner-MC Iceland." Það er embætti ríkislögreglustjóra sem fer með yfirstjórn aðgerðarinnar, sem er viðamikil, að sögn. Framkvæmd aðgerðarinnar til þessa hefur verið í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum auk þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og starfsmenn frá embætti ríkislögreglustjórans taka einnig þátt í henni.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fleiri fréttir Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Sjá meira