Innlent

Kjósa græn svæði frekar en geðfatlaða

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svandís telur þörf fleiri sambýli - en ekki í Laugardalnum.
Svandís telur þörf fleiri sambýli - en ekki í Laugardalnum.

Svandís Svavarsdóttir fulltrúi VG í skipulagsráði Reykjavíkurborgar segir mikla þörf fyrir sambýli fyrir geðfatlaða. Hún kaus hins vegar gegn byggingu slíks heimilis í Laugardalnum á fundi skipulagsráðs í morgun. Svandís telur að nauðsynlegt sé að vernda græn svæði í Laugardalnum og koma til móts við vilja íbúa sem hafi mótmælt byggingu sambýlis þar.

Í bókun sem hún og Margét Sverrisdóttir fulltrúi Frjálslyndra og óháðra lögðu fram segir að „í ljósi þeirra athugasemda sem fram hafa komið og þeirrar staðreyndar að hér er verið að ganga á Laugardalinn með afgerandi hætti greiðir fulltrúi Vinstri grænna atkvæði gegn tillögunni. Ljóst er að þörfin fyrir sambýli af þessu tagi er brýn en jafnframt er ósanngjarnt að allri umræðu um reitinn sé stefnt í þá veru að hún snúist um það hvort menn séu andsnúnir eða meðmæltir úrlausnum fyrir geðsjúka. Umræðunni var alltof snemma stefnt í átakafarveg án þess að raunverulegar sáttaleiðir væru kannaðar til hlítar.

Fulltrúar Vinstri grænna og F-lista kjósa við þessa afgreiðslu að standa með Laugardalnum sem er einn þeirra grænu svæða í borginni sem á sannarlega undir högg að sækja þar sem ásælni í svæðið fer vaxandi og jafnvel með gjaldtöku af ýmsu tagi. Jafnframt er áréttað að dalurinn eigi í sem almestum mæli að nýtast sem opið svæði fyrir almenning þar sem fólk getur notið náttúru í borg ".


Tengdar fréttir

VG vilja ekki sambýli fyrir geðfatlaða

Fulltrúar Vinstri-Grænna í skipulagsráði Reykjavíkurborgar greiddu atkvæði gegn byggingu sambýlis fyrir sex geðfatlaða einstaklinga við Holtaveg í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×