VG vilja ekki sambýli fyrir geðfatlaða Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. september 2007 14:30 Björk Vilhelmsdóttir er hneyksluð á VG.
Fulltrúar Vinstri-Grænna í skipulagsráði Reykjavíkurborgar greiddu atkvæði gegn byggingu sambýlis fyrir sex geðfatlaða einstaklinga við Holtaveg í morgun. Fulltrúar F-lista voru einnig á móti byggingunni en þeir hafa ekki atkvæðisrétt. Svandís Svarvarsdóttir, fulltrúi VG í ráðinu, mótmælti byggingunni á þeirri forsendu að um grænt svæði væri að ræða. Björk Vilhelmsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í skipulagsráði, segir að ákvörðun um byggingu hússins hafi verið tekin þrátt fyrir mikil mótmæli íbúa. Þeir sem standi að samþykktinni telji að uppbygging húsnæðis fyrir geðfatlaða sé það mikilvægasta sem staðið væri frammi fyrir. Þá muni væntanlegt íbúðahús ekki standa á grænu svæði, heldur á lóð sem ekki hafi verið nýtt á neinn hátt. Björk segir að Reykjavíkurborg hafi verið að taka við því verkefni frá ríkinu að tyggja 80 geðfötluðum einstaklingum búsetu. Ekki sé ljóst hver afstaða VG og Frjálslyndra verði þegar það þurfi að byggja upp almennilegt húsnæði fyrir þennan hóp. Björk segist ekki vilja ásaka fulltrúa VG og Frjálslyndra um að vera á móti geðfötluðum. En þau hafi ekki verið tilbúin til að standa með geðfötluðum. Því sé hún gersamlega miður sín yfir. Hanna Birna Kristjánsdóttir segir að bygging hússins hafi lengi staðið til og að komið hafi verið til móts við sjónarmið íbúa í nágrenninu. Til dæmis hafi upphaflega staðið til að byggja tvö hús fyrir samtals tólf einstaklinga en þeim hafi verið fækkað niður í eitt vegna athugasemda. Hanna Birna segir að talsmenn Öryrkjabandalagsins leggi mikla áherslu á að skjólstæðingar sínir fái búsetu í nágrenni við grænt svæði og reynt hafi verið að verða við því. Hanna Birna óttast ekki að íbúar á svæðinu verði fyrir ónæði vegna sambýlisins. „Það kemur nánast aldrei fyrir að það sé kvartað undan sambýlum. Slíkt bara gerist ekki," segir Hanna Birna.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira