Vilja stofna Loftlagsráð Reykjavíkurborgar 8. febrúar 2007 15:16 MYND/Pjetur
Borgarfulltrúar Vinstri - grænna lögðu til á fundi borgarráðs í dag að stofnaður yrði þverpólitískur starfshópur stjórnmálamanna og embættismanna, svokallað Loftlagsráð Reykjavíkurborgar, til þess að bregðast við upplýsingum í nýrri skýrslu um loftlagsmál. Vilja Vinstri - græn að allar áætlanir borgarinnar í skipulags-, umhverfis- og samgöngumálum verði endurskoðaðar þannig að hægt verði að hefjast nú þegar handa við að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík og bæta þannig umhverfi og vellíðan borgarbúa. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að matsskýrsla Sameinuðu þjóðanna, sem kynnt hafi verið 2. febrúar, sé mun afdráttarlausari en fyrri skýrslur. Hún staðfesti að loftslagsbreytingar séu staðreynd og að yfirgnæfandi líkur séu á að þær séu af mannavöldum. Ekki verði hægt að segja annað en að skýrslan dragi upp dökka mynd af stöðu loftslagsmála í heiminum og framtíðarhorfum jarðarbúa. Niðurstöðurnar beri að taka alvarlega, ekki síst í ljósi umsagna um skýrsluna þar sem fram komi að hún standi á mun öruggari vísindalegum grunni en fyrri skýrslur. „Með því að stofna Loftslagsráð Reykjavíkurborgar sýnir borgarstjórn í verki vilja sinn til að taka snarlega til hendi og gera það sem í þeirra valdi er til að bregðast við aðsteðjandi vanda. Í ráðinu sitji fulltrúi allra flokka sem fulltrúa eiga í borgarstjórn Reykjavíkur, en auk þess sviðstjórar þeirra sviða sem sérstaklega fást við umhverfismál. Þverpólitískt ráð skapar skilyrði fyrir að sem flest sjónarmið komi fram sem eykur líkur á breiðri samstöðu um niðurstöður," segir enn fremur í greinargerðinni. Afgreiðslu á tillögunni var frestað á milli funda.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Sjá meira