Vill hert götueftirlit í miðborginni 30. apríl 2007 10:00 Jójó heldur baráttutónleika á Hressó á morgun þar sem margir þekktir listamenn koma fram. MYND/Vilhelm „
Ég er að senda vinaleg boð til borgaryfirvalda um betra götueftirlit til handa komandi æsku," segir götuspilarinn Jójó sem stendur fyrir baráttutónleikum á Kaffi Hressó á morgun. Jójó hefur vakið mikla athygli vegfarenda í höfuðborginni fyrir söng sinn og gítarleik. Hann þekkir því borgina inn og út og vill sjá breytingar. „Það hefur lengi verið að þróast leiðinda viðhorf til höfuðborgarinnar sem þó býr í hjarta hvers manns." Hann segir að það sé mikið til komið vegna þeirra tilhæfulausu líkamsárása sem hafa átt sér stað upp á síðkastið og því sé mikilvægt að auka götueftirlit. Jójó segir einnig að það sé ekki að ástæðulausu að það séu verðir í verslanamiðstöðum svo sem Kringlunni og Smáralind sem hendi fólki út. „Það er óheilbrigt fyrir æskuna að sjá fólk í annarlegu ástandi sitjandi á bekkjum eða liggjandi í ælu sinni í miðborginni. „Við þurfum að halda þessu frá æskunni." Hann vill þó ekki meina að það eigi að halda rónunum frá miðborginni með valdi heldur segir hann að óformlegt spjall við ógæfumenn borgarinnar hafi sannfært hann um mikilvægi þess að fjölga plássum í afvötnun og í áfangahúsum sem hafa reynst vel í Bandaríkjunum. Margir þekktir listamenn koma fram á tónleikunum. Meðal þeirra eru Egill Ólafsson, Gummi Jóns úr Sálinni hans Jóns míns, Pálmi Sigurhjartar og Sigurður Sigurðsson úr hljómsveitinni Kentár auk leynigesta. „Við erum með leynigest sem er fyrirliðinn í Jungle Böm tónlistarstefnunni, nýrri línu í tónlist. Þetta er samt svona gömul stefna í nýjum nærbuxum," segir Jójó dulur í bragði og vill ekkert segja um það meir. Hrafn Jökulsson er kynnir tónleikanna og Egill Helgason heldur ræðu í hálfleik. Tónleikarnir verða að sjálfsögðu utandyra, í garðinum á Kaffi Hressó á milli kl. 15 og 17 á morgun.
Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Sjá meira