Feginn að fylgja rólyndisrokkaranum Eiríki Hauks 30. apríl 2007 10:00 Haukur Hauksson hefur tröllatrú á nærveru Eiríks Haukssonar enda rokkarinn velþekktur á Norðurlöndunum. MYND/Anron „
Einfalt og heiðarlegt verður meginþemað okkar í Helsinki,“ segir Haukur Hauksson en hann hefur tekið við keflinu af Jónatani Garðarssyni sem innsti koppur í búri Eurovision-hópsins en senn líður að því að hópurinn haldi til Finnlands og keppi fyrir hönd Íslands í þessari sívinsælu söngkeppni. Haukur var staddur í Barcelona þegar Fréttablaðið hafði uppi á honum en þar var hann að ljúka við lokaverkefni sitt í MBA-námi við Háskólann í Reykjavík. „Þannig að ég hef eiginlega bara verið í símanum og tölvupóstinum á kvöldin,“ segir Haukur sem verður augljóslega feginn að koma náminu frá, nú þegar Eurovision-æðið heltekur þjóðina. Er reyndar svekktur yfir því að geta ekki komist á leik með Eiði Smára á Nou Camp en viðurkennir að honum hefði nú varla gefist tími til þess, Eurovision og aftur Eurovision bíði hans. Eiríkur Ekki verður annað sagt en að íslenska þjóðin sé bjartsýn á gott gengi rauðhærða rólyndisrokkarans. Haukur er engin nýgræðingur í þessum fræðum, hefur verið aðstoðarmaður Jónatans í fjögur ár og vissi því vel að hverju hann gekk þegar hann tók starfið að sér. En á Hauki verður ekki annað heyrt en að hann prísi sig sælan að fylgja rólyndisrokkaranum Eiríki Haukssyni en ekki sjónvarpsdívunni Silvíu Nótt sem gerði Grikki alveg snarbrjálaða og tókst að afreka það að láta áhorfendur púa á sig. „Það er mjög gott að vinna með Eika. Fyrir utan hversu gott föðurnafn hann ber þá er Eiríkur mikið ljúfmenni og það er kannski jákvætt fyrir okkur að fara þessa leið núna, við erum „ögn“ hógværari heldur en síðast,“ segir Haukur sem óttast þó ekki að aðrir Evrópubúar kunni að líta á Íslendinga sem einhverja geðklofa í ljósi þessa mikla muns. „Nei, Finnar létu hafa eftir sér þegar þeir unnu að þeir hefðu prófað allan skalann,“ segir hann og telur að Íslendingar eigi eftir að græða mikið á nærveru Eiríks. „Hann er vel þekktur innan þessa geira á Norðurlöndum og hefur þéttan rokkbagkrunn.“ Haukur ber stóran titil, Head of Delegation, og það verður því í hans verkahring að sjá um að allt gangi eins og smurt fyrir sig, að hópurinn mæti á æfingar og skapa allar aðstæður þannig að allt gangi sem best. „Þetta er fyrst og fremst mikil vinna og ekki síst mikil pólitík enda er þetta snertiflötur við alla Evrópu. Eurovision er hins vegar einstök upplifun og það gefur manni þennan aukakraft til að sinna þessu stóra verkefni,“ segir Haukur.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira