Vilja leggja nýjan Kjalveg með einkaframkvæmd 4. febrúar 2007 14:10 MYND/Stöð 2
Félagið Norðurvegur vill hefja lagningu nýs vegar yfir Kjöl í einkaframkvæmd og áætlar að kostnaður við framkvæmdina verði um 4,2 milljarðar króna. Á blaðamannafundi í dag á vegum félagsins var hugmyndin kynnt en samkvæmt nýrri skýrslu sem Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri hefur gert fyrir Norðurveg mun vegalengdin milli Akureyrar og Reykjavíkur styttast um nærri 50 kílómetra með hinum nýja vegi. Þá mun vegalengdin frá Selfossi til Akureyrar styttast um rúma 140 kílómetra. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði 8,5 metra breiður og upphækkaður um tvo til þrjá metra yfir nánasta umhverfi. Benda frumathuganir á veðurskilyrðum til þess að veðurfar sé sambærilegt við það sem gerist á Möðrudalsöræfum en rannsaka á það frekar á næstu mánuðum. Gert er ráð fyrir að fólk greiði veggjald fyrir að aka veginn, tvö þúsund krónur á ferð fyrir fólksbíl og átta þúsund fyrir þungaflutninga. Er talið að framkvæmdin geti borgað sig upp á 16 til 18 árum. Hluthafar í Norðurvegi eru nú þegar um 20 talsins og er um að ræða einstaklinga, fyrirtæki og sveitarfélög bæði á Norður- og Suðurlandi. Stjórn félagsins skipa Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, Jóhannes Jónsson í Bónus, Eiður Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Kjarnafæðis, Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, og Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurlandi.
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Fleiri fréttir Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Sjá meira