Miklar breytingar á búsetu á jörðum á suðurhluta landsins 24. september 2007 16:07
Sjö af hverjum tíu bændum á suðurhluta landsins telja miklar eða mjög miklar breytingar hafa orðið á búsetu á svæðinu samkvæmt könnun sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Bifröst gerði fyrir Bændasamtök Íslands. Ráðist var í könnunina í fyrra til þess að greina þróun eignarhalds á bújörðum og meta samfélagsleg áhrif hennar. Könnunin sýnir enn fremur að enginn munur var viðhorfum íbúa á norðursvæði landsins til þess hvort breytingar hafi orðið á búsetu á þeirra svæði. Þá sýnir könnunin að vegna eftirspurnar sunnan heiða eftir jörðum hefur jarðaverð þar hækkað mun meira en í öðrum landshlutum. Áhrif frístundabúsetu eru því önnur og meiri á suðursvæðinu en norðursvæðinu. Félagsleg staða sveitanna veikist Þá telja nærri þrír af hverjum fjórum bændum að breytingar á eignarhaldi jarða síðastliðin 10 ár hafi haft þau áhrif að fólki fækkar í sveitunum og félagsleg staða sveitanna veikist, jarðir fara í eyði og erfiðara er að sinna almennri þjónustu. Þetta hefur þau áhrif að erfiðara er með samhjálp, girðingamál, smalanir, göngur og fjallskil. Könnunin leiðir enn fremur í ljós að breytingar á eignarhaldi virðist hafa jákvæðari áhrif á sunnanverðu landinu en norðanverðu. Þannig eru eigendur jarða sem ekki stunda hefðbundinn landbúnað mun líklegri til þess að verja stærri hluta ársins á jörðum nær höfuðborgarsvæðinu, byggja þar upp og framkvæma. Afgerandi meirihluti bænda, eða 92 prósent, telur það mjög eða frekar mikilvægt að búseta sé á nágrannajörðum þeirra. Þá telur meirihluti svarenda neikvætt að einn aðili eigi margar jarðir. Um var að ræða póstkönnun og var spurningalisti sendur út til ábúenda jarða. Endanlegt úrtak var 804 einstaklingar og var svarhlutfall rúm 58 prósent. Að auki voru tekin viðtöl við 14 einstaklinga vítt og breitt um landið.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira