Innlent

Mikill áhugi á húsnæði í samgöngumiðstöð

Tölvumynd af fyrirhugaðri samgöngumiðstöð í Vatnsmýri.
Tölvumynd af fyrirhugaðri samgöngumiðstöð í Vatnsmýri.

Mikill áhugi er hjá ýmsum aðilum á húsnæði í nýrri samgöngumiðstöð sem ætlunin er að reisa í Vatnsmýrinni innan tveggja ára.

Að sögn Þorgeirs Pálssonar, forstjóra Flugstoða, hafa margir gefið sig fram eftir að verkefnisstjórn á vegum fyrirtækisins auglýsti eftir áhugasömum samstarfsaðilum í blaði fyrr í mánuðinum. Áttu áhugasamir að hafa samband fyrir daginn í dag.

Þorgeir segir að þeir aðilar sem hafi haft samband hafi haft áhuga á að bjóða upp á samgönguþjónustu og þá hafi aðrir lýst yfir áhuga á að reka verslun eða veitingastarfsemi í samgöngumiðstöðinni.

Auglýsing Flugstoða var liður í forkönnun til þess að meta það hvað byggingin þyrfti að uppfylla og jafnframt fjárhagslegan grundvöll verkefnisins. Ætlunin er að einkaaðilar reisi samgöngumiðstöðina. „Undirbúningsfasanum lýkur í byrjun október og þá verður farið yfir vinnuna. Í framhaldinu verða teknar ákvarðanir um verkefnið," segir Þorgeir og bendir á að það sé samgönguyfirvalda að taka ákvörðun um hvort fara eigi út í framkvæmdina.

Aðspurður segir Þorgeir að ef ákveðið verði að ráðast í byggingu samgöngumiðstöðvarinnar verði verkið boðið út. Hugmyndir eru uppi um að hefja framkvæmdir strax næsta vor og að samgöngumiðstöðin verði tilbúin ári síðar, eða 30. apríl 2009.

Það voru fyrrverandi samgönguráðherra og borgarstjóri sem náðu samkomulagi um samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli í ársbyrjun 2005. Ákvörðunin var óháð framtíð flugvallarins þar sem samgöngumiðstöðin átti einnig að þjóna rútum, bílaleigum og stætisvögnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×