Mikill áhugi á húsnæði í samgöngumiðstöð 24. september 2007 10:30 Tölvumynd af fyrirhugaðri samgöngumiðstöð í Vatnsmýri.
Mikill áhugi er hjá ýmsum aðilum á húsnæði í nýrri samgöngumiðstöð sem ætlunin er að reisa í Vatnsmýrinni innan tveggja ára. Að sögn Þorgeirs Pálssonar, forstjóra Flugstoða, hafa margir gefið sig fram eftir að verkefnisstjórn á vegum fyrirtækisins auglýsti eftir áhugasömum samstarfsaðilum í blaði fyrr í mánuðinum. Áttu áhugasamir að hafa samband fyrir daginn í dag. Þorgeir segir að þeir aðilar sem hafi haft samband hafi haft áhuga á að bjóða upp á samgönguþjónustu og þá hafi aðrir lýst yfir áhuga á að reka verslun eða veitingastarfsemi í samgöngumiðstöðinni. Auglýsing Flugstoða var liður í forkönnun til þess að meta það hvað byggingin þyrfti að uppfylla og jafnframt fjárhagslegan grundvöll verkefnisins. Ætlunin er að einkaaðilar reisi samgöngumiðstöðina. „Undirbúningsfasanum lýkur í byrjun október og þá verður farið yfir vinnuna. Í framhaldinu verða teknar ákvarðanir um verkefnið," segir Þorgeir og bendir á að það sé samgönguyfirvalda að taka ákvörðun um hvort fara eigi út í framkvæmdina. Aðspurður segir Þorgeir að ef ákveðið verði að ráðast í byggingu samgöngumiðstöðvarinnar verði verkið boðið út. Hugmyndir eru uppi um að hefja framkvæmdir strax næsta vor og að samgöngumiðstöðin verði tilbúin ári síðar, eða 30. apríl 2009. Það voru fyrrverandi samgönguráðherra og borgarstjóri sem náðu samkomulagi um samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli í ársbyrjun 2005. Ákvörðunin var óháð framtíð flugvallarins þar sem samgöngumiðstöðin átti einnig að þjóna rútum, bílaleigum og stætisvögnum.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira