Fá sex prósenta launahækkun á fyrstu mánuðum næsta árs 9. mars 2007 12:30 MYND/E.Ól
Samkomulag náðist í gær milli Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga í kjaradeilunni sem staðið hefur yfir síðustu mánuði. Samkomulagið þýðir að núgildandi kjarasamningur stendur til maíloka 2008 en kennarar höfðu hótað að segja honum upp um næstu áramót ef ekki semdist. Félag grunnskólakennara og Launanefnd sveitarfélaga hafa síðan í ágúst í fyrra setið um 20 fundi þar sem rætt hefur verið um endurskoðunarákvæði í kjarasamningi kennara. Vildu kennarar að laun þeirra yrðu leiðrétt í samræmi við verðbólgu og launabreytingar hjá fjölmörgum öðrum launastéttum en það steytti á því hversu mikla launaleiðréttingu kennarar ættu að fá. Deiluaðilar hafa fundað með ríkissáttasemjara síðan í janúar vegna málsins en hann lagði fram tillögu á fundi í gær sem báðir féllust á. Í henni felst að kennarar fá 30 þúsund króna eingreiðslu 1. maí næstkomandi og að laun kennara hækki um þrú prósent um næstu áramót í stað 2,25 prósenta en síðarnefndu hækkunina hefðu kennarar ekki fengið ef samningnum hefði verið sagt upp um næstu áramót. Auk þessa hækka allir kennarar einn launaflokk 1. mars á næsta ári en kjarasamningurinn. Samkvæmt útreikningum félags grunnskólakennara þýðir þetta að laun kennara hækka um sex prósent á fyrstu fimm mánuðum næsta árs. Um leið og samið var í gær var ákveðið að ráðast í vinnu um framtíðarsýn og leiðir til jákvæðrar skólaþróunar auk þess sem unnið verður að því semja nýjan kjarasamning sem tekur við þegar núgildandi samningur rennur út 31. maí 2008. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir að lengra hafi ekki verið komist í samningaviðræðunum. Launanefndin hafi ekki haft áhuga á að skipuð yrði úrskurðarnefnd í málinu eins og lagt hafi verið til en aðilar hafi þurft að vera sammáala um það. Því hafi eina leiðin verið sú að semja eða segja upp samningnum frá og með áramótum. Ólafur leggur áherslu á að kennarar fái um sex prósenta launahækkun á fyrstu mánuðum næsta árs með því að núgildandi samningur gildi fram á vorið 2008.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Inga segir já Innlent Fleiri fréttir Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Sjá meira