Samheldni og stolt 9. mars 2007 08:00 Bjartsýnn á Framtíðina Hörður Heiðar Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri ÍR, hvetur alla til að mæta og samfagna á aldarafmæli félagsins.fréttablaðið/Valli
Mikið verður um dýrðir í Breiðholtinu um helgina þegar Íþróttafélag Reykjavíkur, ÍR, fagnar aldarafmæli sínu með pomp og prakt. Hörður Heiðar Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri félagins, hvetur núverandi og framtíðar ÍR-inga til þess að fjölmenna og samfagna á þessum miklu tímamótum. Hörður Heiðar hefur sinnt framkvæmdastjórastöðunni frá því í haust en gekk til liðs við ÍR fyrir fjórum árum. Hann segist strax hafa fundið fyrir samheldni í félaginu og segir stemmninguna þar afar heimilislega þrátt fyrir að félagið sé með stærstu íþróttafélögum landsins. „Hér var mjög vel tekið á móti mér," segir hann og kveðst orðinn gallharður ÍR-ingur þó ekki sé hann innfæddur. Innan félagsins eru nú æfðar níu íþróttagreinar en iðkendur eru á annað þúsund. Grasrótarstarfið í yngstu flokkunum er afar mikilvægt en Hörður tekur undir að félagið hafi löngum reynst afbragðs uppeldisstöð fyrir afreksfólk. „Eins og gefur að skilja hafa fjölmargir frábærir íþróttamenn komið og starfað hjá ÍR," segir Hörður og nefnir frjálsíþróttafólkið Vilhjálm Einarsson, Völu Flosadóttur, Þórdísi Gísladóttur og þann frægasta, sem þar á bæ er enn fyrst og síðast kenndur við ÍR - knattspyrnukappann Eið Smára Guðjohnsen. „Við erum mjög stolt af okkar fólki," segir Hörður og áréttar að allar deildir félagsins vinni frábært starf. Hörður vonast til þess að vegur félagsins aukist enn á komandi árum og bendir á að með bættum húsnæðiskosti muni samheldnin aukast. Starfið hafi verið dreift á undanförnum árum þar sem keiluæfingar fari til að mynda fram í Öskjuhlíð og frjálsíþróttaæfingar í Laugardal. „Á næstunni verður ráðist í byggingu íþróttamannvirkis hér á ÍR-svæðinu sem mun stuðla að því að ÍR verði enn stærra, betra og samheldnara félag," segir framkvæmdastjórinn bjartsýnn. „Að undanförnu hafa líka fjölmargir komið til starfa hjá félaginu sem munu hleypa í það enn meira lífi." Um helgina verður fjölskylduhátíð í íþróttahúsi Seljaskóla og afmælishátíð fyrir átján ára og eldri í Austurbergi á laugardagskvöldið. Á sunnudeginum, á afmælisdaginn sjálfan, verður opið hús og fjölbreytt dagskrá í ÍR-heimilinu þar sem öllum er boðið að þiggja kaffi og léttar veitingar. Þá verður einnig afhent afmælisrit ÍR en það skráði Ágúst Ásgeirsson. Ritið er veglegt og skreytt fjölda mynda en þar geta áhugasamir kynnt sér ríkulega sögu félagsins og forkólfa þess.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Sjá meira