Kaupa 15 íbúðir fyrir geðfatlaða 20. desember 2007 16:12 MYND/Pjetur
Hleypt var af stokkunum nýju átaksverkefni félagsmálaráðuneytisins í dag sem miðar að því að efla þjónustu og búsetuúrræði geðfatlaðra. Verkefnið hefur fengið nafnið Straumhvörf og nær til 160 einstaklinga á landinu öllu sem þurfa búsetu á vegum svæðisskrifstofu eða félagsþjónustu sveitarfélaga. Fram kemur í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu að markmið verkefnisins sé að bjóða fólki búsetu í einstaklingsíbúðum utan stofnana og styrkja þjónustu sem eflir virkni geðfatlaðra. Ásta R. Jóhannesdóttir alþingismaður er formaður verkefnisstjórnar Straumhvarfa. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra undirritar í dag samkomulag við Brynju, hússjóð Öyrkjabandalagsins, um kaup á 15 íbúðum í Reykjavík sem notaðar verða í þágu geðfalaðra. Íbúðirnar hafa þegar verið teknar í notkun. Stofnframlag Straumhvarfa til kaupanna er 210 milljónir króna. Með þessum íbúðum hefur verið tekið í notkun í Reykjavík húsnæði fyrir 27 einstaklinga á árinu 2007 fyrir atbeina Straumhvarfa, að hluta til í samstarfi við Reykjavíkurborg. Þar sem þörf er á verður um sólarhringsþjónustu að ræða en reynslan sýnir að unnt er að fella niður næturvakt þegar þjónustan er komin í fastar skorður. Dagleg framkvæmd þjónustunnar verður á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Þá undirritaði félagsmálaráðherra einnig samninga um að styrkja tvenn sjálfstæð félagasamtök, Klúbbinn Geysi og Geðhjálp, um 10 milljónir króna á tveimur árum. Markmið samninganna er að styrkja dagþjónustu sem veitt er á vegum félaganna. Fjárstuðningur Straumhvarfa kemur til viðbótar þeim fjárframlögum sem Klúbbnum Geysi og Geðhjálp eru veitt á fjárlögum ríkisins eftir því sem segir í tilkynningu félagsmálaráðuneytisins.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira