Eimskipsmál sýnir vaxandi styrk Samkeppniseftirlitsins 20. desember 2007 14:59 MYND/Pjetur
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að úrskurður Samkeppniseftirlitsins í máli Eimskips sýni hversu sterk stofnunin sé orðin.Eins og fram kom í fréttum í gær var Eimskip sektað um 310 milljónir króna fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína á sjóflutningamarkaði. Taldi stofnunin að brot Eimskip hefðu verið alvarleg og til þess fallin að valda atvinnulífinu og almenningi miklu samkeppnislegu tjóni. Reynt hefði verið markvisst að bola keppinautinum Samskipum út af markaðnum með markaðsatlögu.„Samkeppniseftirlitið kemst þarna að því eftir ítarlega rannsókn að um alvarlegt brot sé að ræða og sektar félagið. Ég tel að þetta undirstriki að Samkeppniseftirlitið er öflug stofnun," segir Björgvin og bætir við að stofnunin hafa verið efld enn frekar með því að auka framlög til hennar um 30 prósent milli ára.Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, var forstjóri Eimskips á þeim tíma sem brotin voru framin. Samkeppniseftirlitið segir að ráða megi af gögnum málsins að aðgerðir Eimskips hafi að mestu verið skipulagðar af framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Eimskips í nánu samstarfi við forstjóra og aðra framkvæmdastjóra félagsins.Aðspurður hvort niðurstaða Samkeppniseftirlitsins veiki stöðu Ingimundar hjá Íslandspósti, sem er hlutafélag í eigu ríkisins, segir Björgvin að það verði að koma í ljós. Ingimundur verði meðal annars að meta það sjálfur.Íslandspóstur heyrir undir samgönguráðuneytið en Kristján L. Möller samgönguráðherra hyggst ekki tjá sig um málið.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Sjá meira