Sveitastjóranum í Grímsey sagt upp 18. desember 2007 18:30
Sveitarstjóranum í Grímsey hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um stórfelld fjársvik. Grímseyjarhreppur íhugar að breyta stjórnsýslureglum sínum vegna málsins. Alfreð Garðarsson hreppsnefndarmaður í Grímsey segir að Brynjólfi Árnasyni sveitarstjóra hafi verið sagt upp störfum í gær og Garðar Ólason verið skipaður sveitarstjóri til bráðabirgða. Þessi ákvörðun er tekin vegna vissu að sögn Alfreðs um stórfelld fjársvik Brynjólfs, skjalafals, undanskot og fleira. Brynjólfur hefur að líkindum stolið milljónum frá hreppnum, segir Alfreð og naut þar yfirburða tölvukunnáttu umfram aðra hreppsnefndarmenn. Skýringar sveitarstjórans voru ein samfelld lygaþvæla, segir Alfreð, en ástæða þess að hreppsnefndin ákvað að láta innsigla sveitarstjórnarskrifstofuna fyrir skömmu var sú að eyjaskeggjar voru smeykir um að Brynjólfur myndi eyða gögnum úr tölvu hreppsins og skemma sönnnunargögn um brotin. Alfreð segir ekki spurningu hvort heldur hvenær málið fer lögformlega lögreglu- og dómstólaleið. Þá sé alveg á hreinu að Brynjólfur fái ekki frekari laun frá hreppnum. Það hefur flækt þetta mál að nánast ekkert samband hefur náðst milli sveitarstjórans og hreppsnefndar vegna veikinda hans eftir að grunur kviknaði um fjársvikin. Í skoðun er nú að endurskoða reglur hreppsins um að oddviti sem jafnframt hefur hingað til verið sveitarstjóri fari með öll völd og umsýslu eins og var í tíð Brynjólfs. Grímseyingar hafa litið á sig sem eina samhenta fjölskyldu hingað til og málið er því mikið áfall fyrir eyjaskeggja, segir Alfreð Garðarsson hreppsnefndarmaður.
Mest lesið Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Hæstiréttur í Bretlandi dæmir Auðuni Má í vil Fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Sjá meira