Dagsektir á foreldra sem ekki nefna börnin sín 8. desember 2007 19:40
Leggja má dagsektir á foreldra sem ekki hafa gefið barni sínu nafn innan sex mánaða frá fæðingu þess og sinna ekki ábendingum yfirvalda um nafngift. Á sjötta tug lagabálka veita heimildir til dagsekta. Margir sjálfstæðismenn og Samtök atvinnulífsins hafa gagnrýnt ákvæði um dagsektir í jafnréttisfrumvarpi félagsmálaráðherra. Þótt jafnréttisfrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra hafi verið borið undir báða þingflokka eru í því ýmis ákvæði sem Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt, meðal annars þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Sigurður Kári Kristjánsson og formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna. Bjarni hefur meðal annars gagnrýnt dagsektarákvæði í frumvarpinu. Þá hafa Samtök atvinnulífsins gert alvarlegar athugasemdir við frumvarpið og sagt að þar séu skaðlegar og íþyngjandi reglur fyrir atvinnulífið. Meðal annars hafa samtökin gert athugasemdir við ákvæði um viðurlög í formi dagsekta. Þau telja að hvatning og leiðbeiningar séu vænlegri til að jafnrétti verði náð. Lögmaður sem fréttastofa ræddi við í dag segir dagsektir algengt úrræði til að knýja á um efndir laga gagnvart fólki og fyrirtækjum. Það má með sanni segja. Þegar lagasafn landsins er skoðað kemur í ljós að fimmtíu og þrír lagabálkar innihalda heimildir til dagsekta. Til dæmis má nefna, eins og kunnugt er, að fyrirtæki sem ekki hlíta tilmælum Samkeppniseftirlitsins um skil á gögnum má beita dagsektum. Eins má beita dagsektum á framleiðanda sem hefur merkt vöru sínu illa og hunsar tilmæli um breytingu þar á. Ef maður er að byggja hús, lendir í fjárkröggum og getur ekkert unnið í húsinu í tvö ár - getur sveitarstjórn, með sex mánaða fyrirvara, lagt dagsektir á manninn með byggingarleyfið. Þetta vita eflaust ýmsir en líklega er fáum kunnugt um að ef foreldrar gefa ekki barn sínu nafn innan sex mánaða frá fæðingu þess og hunsa í einn mánuð áskorun um að drífa í að gefa barninu nafn - má beita foreldrana dagsektum. Og varla vita fleiri að, samkvæmt byggingarreglugerð, má beita þá dagsektum sem ekki tyrfa og gróðursetja og ganga skikkanlega frá lóðum í kringum nýbyggingar sínar.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Fleiri fréttir Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Sjá meira