Stjórnvöld sökuð um að leyna Alþingi upplýsingum Heimir Már Pétursson skrifar 5. desember 2007 19:00
Stjórnarandstaðan sakaði í dag fjármálaráðherra og stjórnarliða um að halda gögnum um sölu eigna ríkisins á Keflavíkurflugvelli frá Alþingi. Þá fullyrða þingmenn stjórnarandstöðunnar að lög hafi verið brotin við framkvæmd sölunnar. Forsætisráðherra gefur Alþingi skýrslu um málið á morgun. Sturla Böðvarsson áminnti Atla Gíslason þingmann Vinstri grænna við upphaf þingfundar í dag fyrir ummæli sem hann lét falla í umræðum á Alþingi í gær vegna Þróunarfélagsins á Keflavíkurflugvelli. Og þar með var fjandinn laus og dagskrá Alþingis riðlaðist vegna þarfar þingmanna fyrir að ræða störf þingsins. En forseti vildi meina að þingmaðurinn hefði ekki farið rétta leið við að óska eftir upplýsingum frá Ríkisendurskoðun. Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna sagði fulla ástæðu til að þingmenn fengju aðgang að þessum gögnum. Lög hefðu verið brotin við sölu eigna á Keflavíkurflugvelli. Samflokksmenn Atla í fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd, þeir Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson, fullyrtu einnig að þeim hefði verið neitað um aðgang að nauðsynlegum gögnum um málið í sínum nefndum. Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslynda flokksins gagnrýndi líka meinta hagsmunaárekstra í málinu og Bjarni Harðarson Framsóknarflokki sagði framkvæmd sölunnar mjög vafasama. Fjármálaráðherra vísaði öllum ásökunum um meint lögbrot og svig við reglur á bug.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira