Skynsamlegra að byggja upp álver á Húsavík en fyrir sunnan 5. desember 2007 16:12 MYND/GVA
Össur Skarðhéðinsson iðnaðarráðherra segir að skynsamlegra sé að byggja upp álver á Húsavík en á suðvesturhorninu. Hins væri mikilvægt að nýta orku landsins til uppbyggingar á hátækniiðnaði. Þetta kom fram í máli ráðherrans í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, var málshefjandi umræðu um atvinnuuppbygginu á Austurlandi. Óskaði hann Íslendingum til hamingju með Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði og sagði byggðamál standa betur nú en fyrir 10 árum. „Vinnan er móðir hamingjunnar," sagði Guðni og benti á að mikil atvinnuuppbygging hefði orðið á síðustu árum og fleiri stoðum hefði verið skotið undir atvinnulífð. Sjávarútvegur hefði áður verið eina gjaldeyrisstoðin en nú væru þær fjórar: sjávarútvegur, ferðaþjónusta, iðnaður og fjármálaþjónusta. Það hefði verið rétt ákvörðun að ráðast í álverið í Reyðarfirði og Kárahnjúka sem myndu mala gull í lófa komandi kynslóða. Sagði hann Framsóknarflokkinn hafa verið móðurina eða föðurinn í þessum málum og spurði Össur Skarphéðinsson hvort byggja ætti upp fleiri atvinnutækifæri á Austurlandi og vinna að samgöngubótum. Össur Skarphéðinsson benti á að þrír og eftir atvikum fjórir flokkar hefðu stutt framkvæmdirnar en tími væri kominn til að deilum um uppbygginguna linnti. Stóriðjuuppbyggingin hefði leitt til þess að þjóðin hefði tekið umhverfismál miklu nær hjarta sínu sem væri gott. Þá sagði Össur að Kárahnjúkavirkjkun væri tæknilegt stórvirki og hefði skipt sköpun fyrir þróun Austfjarða. Útlit væri fyrir að íbúum á Austurlandi fjölgaði um allt að 2000 nú þegar framkvæmdum væri að ljúka en framkvæmdirnar hefðu margfeldisáhrif. Þessar framkvæmdir hefðu náð þeim tilgangi varðandi byggðir sem stefnt var að. Þá sagði Össur að hrakspár manna um að enginn Íslendingur myndi vinna í álverinu í Reyðarfirði hefðu ekki ræst því 220 starfsmannanna væru af Austurlandi og 160 kæmu annars staðar frá. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, sagði að þeir sem nú fögnuðu gangsetningu Kárahnjúkavirkjunar ættu að stilla fagnaðarlátum í hóf. Framkvæmdirnar á Austurlandi hefðu verið eitt allra erfiðasta deilumál þjóðarinnar síðustu ár og klofið hana. Vinstri - grænir óskuðu starfsfólki fyrir austan alls góðs í störfum sínum þrátt fyrir að flokkurinn hefði verið á móti framkvæmdunum. Þá sagði hann að reynslan ætti eftir að sýna hversu mikil viðspyrna framkvæmdirnar yrðu í byggðamálum á Austurlandi. Benti Steingrímur á að Mið-Austurland hefði aðeins notið góðs af uppbyggingunni. Einar Már Sigurðarson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði uppbygginguna á Austurlandi fordæmi sem flytja ætti til annarra landshluta og því væri eðlilegt að ráðast í álver á Húsavík. Það væri þjóðhagslegt glapræði að byggja upp stóriðju á suðvesturhorninu.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira