Innlent

Tólf stútar teknir um helgina

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur og þrír fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.
Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur og þrír fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Tveir voru stöðvaðir á föstudag, sjö á laugardag og þrír á sunnudag.

Sex voru teknir í Reykjavík, þrír í Kópavogi, tveir í Garðabæ og einn í Hafnarfirði. Þetta voru tíu karlar á aldrinum 17-57 ára og tvær konur, 28 og 33 ára. Þá voru þrír piltar um tvítugt teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna á laugardag. Tveir þeirra voru stöðvaðir í Kópavogi en sá þriðji í Reykjavík.

Um helgina var 71 umferðaróhapp tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×