Staða íslenskra grunnskólanema versnar skv. PISA-rannsókn 4. desember 2007 12:40 MYND/GVA
Staða íslenskra grunnskólanema gagnvart jafnöldrum sínum í svokallaðri PISA-könnun hefur versnað á milli áranna 2000 og 2006 samkvæmt nýrri PISA-könnun sem birt var í dag.Í henni kemur fram að staða Íslands hafi versnað mest í lesskilning en frammistaða íslenskra nemenda þar hefur hrakað marktækt frá árinu 2000. Staða Íslands versnar minnst í stærðfræði. Í náttúrufræði lendir Ísland í 27. sæti af 57 löndum, rétt fyrir neðan meðaltal OECD-landa. Í lesskilningi lendir Ísland í 24. sæti, einnig rétt fyrir neðan meðatal OECD, og í 17. sæti í stærðfræði, rétt fyrir ofan meðaltal OECD.Þegar undirfög náttúrufræðinnar eru borin saman kemur í ljós að íslenskir nemendur eru slakastir í líf- og vistfræði, næstbestir í eðlis- og efnafræði, en sterkastir í jarð- og stjörnufræði eftir því sem segir í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu.Þá hefur frammistaða nemenda eftir landshlutum hefur breyst á milli rannsókna. Vestfirðir, Norðurland eystra og vestra sýna bestu frammistöðu landshluta, en Austurland ásamt Reykjavík og nágrenni hrakar mest frá árinu 2000.Niðurstöðurnar mikil vonbrigðiMenntamálaráðuneytið segir niðurstöðuna mikil vonbrigði. Ekki sé ásættanlegt að árangur íslenskra nemenda sé ekki betri, sérstaklega í ljósi þess mikla uppbyggingar- og þróunarstarfs sem átt hafi sér stað í skólum landsins á undanförnum áratug og þeirrar staðreyndar að fáar aðrar þjóðir verja jafn miklu fjármagni til grunnskólastigsins.Telur ráðuneytið að skólayfirvöld, sveitarstjórnir, skólastjórnendur og kennarar þurfi að fara í saumana á þessum niðurstöðum og draga af þeim lærdóm. „Menntamálaráðherra treystir því að frumvörp til laga fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, ásamt frumvarpi um kennaramenntun, sem nýlega voru lögð fram á Alþingi, skapi forsendur fyrir bættum árangri nemenda en þar er m.a. gert ráð fyrir lengingu kennaramenntunar og skilvirkara mati á skólastarfi," segir í tilkynningu menntamálaráðuneytisinsPISA-rannsóknin náði sem fyrr segir til 57 landa árið 2006. Hér á landi tóku allir grunnskólar og velflestir nemendur 10. bekkjar þátt í henni. Í könnuninni núna var sérstök áhersla á náttúrufræði þar sem reyndi á þekkingu nemenda á ýmsum sviðum raunvísinda, færni þeirra til að túlka vísindalegar staðreyndir og nota vísindaleg rök.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira