Allir trúnaðarmenn Strætó hættir 3. desember 2007 11:14 60% vagnstjóra hafa hætt eftir að nýja kerfið var tekið í notkun. MYND/365
Fimm starfsmenn Strætó BS eru hættir sem trúnaðarmenn félagsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fimmmenningunum. Deilur hafa verið á milli trúnaðarmannanna og yfirstjórnar Strætó. Málið tengist kokkteilasamkomu sem haldin var fyrir fráfarandi trúnaðarmenn fyrirtækisins í síðustu viku. Í DV í dag kemur fram að boðið hafi verið upp á áfengi í boðinu en eftir það fóru nokkrir hinna nýju trúnaðarmanna niður á Hlemm til þess að heilsa upp á vinnufélaga. Síðan tóku þeir Strætó heim en fengu bréf frá yfirstjórninni daginn eftir. Þar var varað við áminningu í starfi vegna ölvunnar. Yfirlýsingu trúnaðarmannana má lesa hér að neðan. Að vel athuguðu máli höfum við undirritaðir, trúnaðarmenn og varatrúnaðarmenn hjá Strætó ákveðið að segja okkur frá öllum afskiptum af trúnaðarmannastörfum fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Okkur þykir það leitt að félagið okkar skuli hafa verið dregið inn í deilur við Strætó að ósekju og viljum taka það skýrt fram að við höfum fengið allann hugsanlegan stuðning og velvilja þaðan. Vegna yfirlýsinga, og ógnanna framkvædastjóra Strætó bs. og deildarstjóra akstursdeildar, við okkur og í okkar garð er sjálfgefið að okkar starfi er lokið. Við höfum ekki taugar né geð að eiga í stríði við atvinnurekanda okkar. Framkoma og atvikaröð þar sem allur mögulegur tilbúningur hefur verið ataður yfir okkur skýrir okkar mál og hefur lögreglunni m.a. verið beitt í þeirri atburðarás sem lýsir þó nokkuð þeim stjórnunarstíl sem viðhafður er. Síðan nýtt leiðakerfi var sett á hjá strætó hafa hátt í 60% af vagnstjórum hætt störfum hjá fyrirtækinu. Afar erfitt hefur verið fyrir fyrirtækið að endurnýja allt þetta brotthvarf. Það er vonandi að nýr meirihluti í Borgarstjórn fari nú í að skoða hvað er raunverulega að hjá þessu fyrirtæki. Virðingarfyllst Jóhannes Gunnarsson, 1. trúnaðarmaður, Friðrik Róbertsson, 2. trúnaðarmaður, Ingunn Guðnadóttir, 3. trúnaðarmaður, Guðmundur Ingi Pétursson, varatrúnaðarmaður, Ingólfur Eðvard Skarphéðinnsson, varatrúnaðarmaður.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira