Unglingsstúlka tókst á loft í veðurhamnum á Siglufirði 30. nóvember 2007 14:08 Í nógu hefur verið að snúast fyrir Björgunarsveitina Stráka á Siglufirði. MYND/Vilhelm
Unglingsstúlka tókst á loft í vindhviðu á Siglufirði í nótt en þar hafði Björgunarsveitin Strákar í nógu að snúast vegna hvassviðris. Sveitin var fyrst kölluð út um þrjúleytið til þess að festa þakplötur á sambýli í bænum. Þegar sveitin var á leið aftur í hús lét lögregla vita að þak væri að fjúka af öðru húsi. Þegar björgunarsveitin kom þar að var fjölskyldan komin út úr húsinu og var skipað að fara þegar inn aftur þar sem fjúkandi þakplötur eru mjög hættulegar. Veður var mjög slæmt á þessum tíma og tókst unglingsstúlkan af heimilinu hreinlega á loft í einni hviðunni eftir því sem segir í tilkynningu Landsbjargar. Lauk sveitin störfum þar um sjöleytið en um ellefuleytið var hún aftur kölluð út þegar 11 plötur losnuðu í einu lagi af Roaldsbragganum við Síldarminjasafnið. Ein plata lenti ofan í bryggunni og fór þar í gegnum þrjá tveggja tommu þykka planka. Er aðförunum lýst eins og farið hafi verið með keðjusög í bryggjuna. Björgunarsveitir hafa síðan þá verið á ferð um bæinn, tínandi upp lauslega muni, eins og öskutunnur, um allan bæ. Fjölmörg útköll um allt land Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út víðar á landinu undanfarinn sólarhring. Fyrsta útkallið kom síðdegis í gær en þar óskaði bóndinn á Hólum á Rangárvöllum eftir aðstoð Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu vegna þakplatna sem voru að losna á íbúðarhúsinu. Þá voru björgunarsveitir á Austurlandi kallaðar út seinni partinn í gær til að aðstoða fólk sem var fast í bílum upp á Öxi og Fjarðarheiði. Þá reyndi á Björgunarfélag Vestmannaeyja í gærkvöld þar sem vindhraðinn mældist allt að 49 metrar á sekúndur og þakplötur og klæðningar fóru að losna af húsum. Enn fremur var Björgunarsveit Skagfirðingasveitar kölluð út laust eftir miðnætti í gær til að hefta þakplötufok á Sauðárkróki og morgun hefur Hjálparsveitar Skáta í Hveragerði aðstoðað bíla í vandræðum á Hellisheiði.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Sjá meira