Heilsufarsbrestir frekar en hár aldur orsök banaslysa Breki Logason skrifar 29. nóvember 2007 11:30 „Oft á tíðum eru sjúklingar hinsvegar að taka lyf sem hafa slæfandi áhrif og því ættu þeir alls ekki að keyra." „
Hærri aldri fylgja veikindi og heilsufarsbrestir, þetta er því aðallega spurning um heilsu frekar en aldur," segir Ágúst Mogensen hjá rannsóknarnefnd umferðarslysa. Það sem af er árinu hafa orðið 14 banaslys í umferðinni og þar af fjögur á Suðurlandsvegi. Í síðustu þremur banaslysum hefur einstaklingur eldri en 65 ára látist og í öllum þeim tilvikum hefur orðið árekstur við flutningabíl eða vörubíl. Ágúst segir að ef horft sé til alþjóðlegrar tölfræði sjáist að tíðnin sé mjög há hjá ungu fólki og hún hækki síðan aftur hjá fólki sem er 65 ára og eldri. „Það skýrist mest megnis vegna veikinda, sjúkdóma og ýmsu sem aldrinum fylgir. Við sjáum þetta sérstaklega varðandi gangandi vegfarendur þar sem lífslíkur ungrar manneskju eru hærri, beinin eru sterkari og svo framvegis," segir Ágúst. Eins og margir hefur Rannsóknarnefnd Umferðarslysa fjallað um og fært ýmis rök fyrir því að aðreina akstursstefnur bæði á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi. „Við sjáum það að þessar hörðu framaná keyrslur eru á þessum tveimur akstursleiðum. Frá höfuðborgarsvæðinu og á Selfoss og siðan frá höfuðborgarsvæðinu og upp í Borgarnes. Við höfum sem betur fer losnað við slys af þessu tagi á Reykjanesbraut eftir að þar var gripið til aðgerða." Ekkert banaslys hefur orðið á þeim kafla Reykjanesbrautarinnar sem er tvöfaldur. Ágúst man þó eftir einu slysi fyrir nokkrum árum en það var á kafla þar sem ekki var búið að taka akreinarnar í notkun. Ágúst bendir á Varnaðarskýrslu um veikindi ökumanna sem RNU gaf út fyrir nokkru þar sem velt er fyrir sér hvaða leiðir sé hægt að fara í að greina og ráðleggja fólki um að aka ekki lengur. „Við höfum bent Samgönguráðuneytinu á að það þurfi að endurskoða reglur sem um þetta gilda. Þær eru ekki nógu góðar og það er ekki nóg af haldföstum greiningum sem hægt er að notast við." Ágúst bendir á að læknar séu oft í erfiðri stöðu þar sem þeir eru bundnir trúnaði við sjúklinga sína. „Oft á tíðum eru sjúklingar hinsvegar að taka lyf sem hafa slæfandi áhrif og því ættu þeir alls ekki að keyra. En flækjustigið er síðan óendanlegt þar sem fólk hefur mismunandi þol gagnvart lyfjum og fleira í þeim dúr, þetta er því nokkuð flókið." Ágúst segir eftirlitið mest með ungum ökumönnum en síðan komi gat í kerfinu. „Þegar þú endurnýjar og færð fullnaðarréttindin er ekkert fylgst með þér þar til þú verður sjötugur. Ekki nema þú verrði uppvís að einhverju vítaverki, þá detturðu aftur inn í kerfið."
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Fleiri fréttir Inga of upptekin til að funda: Foreldrahúsi verður lokað innan tveggja vikna „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sjá meira