Um hundrað milljónir í aðstoðarmenn og aukið alþjóðastarf 29. nóvember 2007 08:45 MYNDVilhelm
Reiknað er með tæplega 100 milljóna króna viðbótarframlagi til Alþingis vegna breytinga á þingsköpum og starfsaðstöðu þingmanna. Þetta kemur fram í nefndarálit meirihluta fjárlaganefndar vegna fjárlagafrumvarps næsta árs. Búið er að leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um þingsköp sem gerir meðal annars ráð fyrir því að ráðnir verði aðstoðarmenn fyrir formenn stjórnarandstöðuflokkanna auk þess sem gert er ráð fyrir sérstöku framlagi til aðstoðar fyrir þingmenn í Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmum. Er hugmyndin að tveir landsbyggðarþingmenn, sem ekki eru ráðherrar eða formenn stjórnarandstöðuflokks, deili með sér aðstoðarmanni. Þá er gert ráð fyrir meiri þátttöku stjórnarandstöðu í alþjóðastarfi og auknum ferðakostnaði því samfara. Í nefndarálitinu er enn fremur gert ráð fyrir nærri 200 milljóna króna tímabundnu framlagi til forsætisráðuneytisins vegna endurbóta á byggingum stjórnarráðsins. Það er vegna sameiningar ráðuneyta og tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðs Íslands. Þannig verða gerðar breytingar á Sjávarútvegshúsinu vegna sameiningar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis auk þess sem viðskiptaráðuneytið flytur úr Arnarhvoli í Sölvhólsgötu 7 þaðan sem landbúnaðarráðuneytið flytur.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira