Þrjú hundruð þúsund íslenskukennararar virkjaðir 28. nóvember 2007 10:10
Til stendur að virkja um 300 þúsund íslenskukennara með sérstöku átaki nokkurra félaga sem miðar að því að þjálfa erlenda starfsmenn í íslensku. Það eru Alþjóðahús, ASÍ, Efling, Samtök verslunar og þjónustu og VR sem standa fyrir átakinu og verður því hleypt af stokkunum í dag með útgáfu fjölmargra barmerkja sem útlendingar verða hvattir til að nota. Á þeim stendur meðal annars: Ég er að læra íslensku, íslenska er mínar ær og kýr, er íslenska ekkert mál? og hvernig á að fallbeygja kýr. Átakið kemur í kjölfar töluverðrar umræðu í samfélaginu um fjölgun erlendra starfsmanna hér á landi, ekki síst í þjónustustörfum, og miklvægi þess að kenna þeim íslensku. Bent er á í tilkynningu frá Alþjóðahúsi að afgreiðslufólki sem talar enga eða litla íslensku fjölgi ört vegna þess að verslunum hafi gengið illa að manna að fullu störf í afgreiðslu með innlendu launafólki. Með barmmerkjunum á að minna Íslendinga á að það tekur tíma að læra nýtt mál og virkja þá í að kenna útlendingum íslensku. Þannig hvetja félögin fólk til að tala ekki ensku að fyrra bragði og að gefa sér tíma til að hlusta og eiga samræður á íslensku þrátt fyrir takmarkaðan orðaforða viðmælanda. Barmmerkjunum verður dreift til aðildarfélaga ASÍ og aðildarfyrirtækja Samtaka verslunar og þjónustu um allt land og til símenntunarmiðstöðva. Þá verður hægt að hafa samband við Alþjóðahúsið, ASÍ, Eflingu eða VR til að fá fleiri merki.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Fleiri fréttir Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Sjá meira