Skaddaði sjón manns varanlega í líkamsárás 27. nóvember 2007 16:08 MYND/Valli
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi meðal annars til þess að sjón fórnarlambsins skaddaðist varanlega. Atvikið átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur í febrúar í fyrra og var hinum ákærða gefið að sök að hafa slegið fórnarlamb sitt nokkrum sinnum í andlitið þannig að fórnarlambið nefbrotnaði, hlaut glóðarauga auk þess sem brot kom í vinstri augnbotn. Leiddi það meðal annars til langvarandi sjónskerðngar og varanlegrar tvísýni eftir því sem fram kemur í dómnum. Árásarmaðurinn viðurkenndi að hafa slegið fórnarlamb sitt og bar við sjálfsvörn. Hann viðurkenndi þó að hann hefði gengið fullharkalega fram í atlögu sinni. Út frá framburði fórnarlambsins og vitnis þótti dómnum hins vegar sannað að ákærði hefði ráðist að fyrra bragði á fórnarlamb sitt og veitt því áverkana. Segir dómurinn árásina því tilefnislausa og að hún hafi leitt til varanlegs sjónskaða fyrir fórnarlambið, en það þurfti að gangast undir endurteknar aðgerðir til að lagfæra tvísýni og innfallið auga. Segir dómurinn að ákærði eigi sér engar málsbætur og að árásin hafi verið harkaleg. Var ákveðið í ljósi þessa að skilorðsbinda ekki refsinguna en maðurinn, sem ákærður var, hafði aldrei áður komist í kast við lögin.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Fleiri fréttir Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Sjá meira