Innlent

Stútum undir stýri fjölgar á milli ára í Eyjum

Mynd/Vísir

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur stöðvað 19 manns fyrir ölvunarakstur það sem af er þessu ári, þar af einn í síðustu viku.

Í dagbók lögreglunnar er bent á að á sama tíma í fyrra höfðu 13 ökumenn verið stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur og er því um nokkra fjölgun að ræða.

Segir lögreglan í Vestmannaeyjum tíðindin vekja vonbrigði með að ökumenn skuli ekki vera skynsamari en þetta. Hins vegar sé jákvætt að lögreglan stöðvi ökumennina því eins og margoft hafi verið bent á hafi ökumenn sem eru undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna valdið alvarlegum slysum í umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×