Innlent

Langstærsta framkvæmdin í Bolungarvík um árabil

MYND/Vilmundur

Bæjarstjórn Bolungarvíkur samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að heimila framkvæmdir og útboð vegna uppbyggingar Félagsheimilis Bolungarvíkur. Þetta er langstærsta einstaka framkvæmdin sem ráðist hefur verið í í sveitarfélagin um árabil eftir því sem segir í tilkynningu frá bæjarstjóranum Grími Atlasyni.

Fyrsti hluti framkvæmdarinnar er niðurrif og undirbúningur fyrir uppbygginguna og verður skrifað undir samninga vegna þess í dag.

Í tilkynningunni segir enn fremur að gert sé ráð fyrir að leita eftir allt að 30 prósentum af fjármagni sem þarf til verksins hjá opinberum aðilum og einkaaðilum. Um sé að ræða mikla fjárfestingu bæjarsjóð Bolungarvíkur en flestir séu sammála um að hún sé óhjákvæmileg og nauðsynleg til uppbyggingar Bolungarvíkur.

„Félagsheimilið hefur um árabil verið stolt Bolvíkinga og goðsagnakenndar sögur af mönnum, sem komu beint af sjónum til þess að leggja sitt að mörkum við byggingu þess, fylla íbúa Bolungarvíkur enn þann dag í dag stolti. Það má því með sanni segja að dagurinn í dag marki ákveðin tímamót í sögu Bolungarvíkur," segir í tilkynningu bæjarstjórans í Bolungarvík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×