Innlent

Lögreglan leitar skemmdarvarga

Gissur Sigurðsson skrifar
Lögregla leitaði í nótt tveggja ungra manna, sem unnu skemmdarverk á strætisvagnaskýli við Grensásveg, á móts við Espigerði í Reykjavík í nótt, en fann þá ekki. Vitni sáu til þeirra en þeir sluppu út í náttmyrkrið. Nokkuð hefur borið á svona skemmdarverkum í borginni upp á síðkastið án þess að skemmdarvargarnir hafi náðst. Tjónið er talið nema hundruðum þúsunda króna.-



Fleiri fréttir

Sjá meira


×