Innlent

Tvö þúsund golfkúlum stolið við Svarfhólsvöll

Þau eru margvísleg málin sem lögreglumenn á landinu glíma við, þar á meðal merkileg þjófnaðarmál.

Þannig rannsakar lögreglan á Selfossi nú þjófnað á um tvö þúsund golfkúlum og átta boltakörfum við Svarfhólsvöll í Laugardælum. Það var gert með þeim hætti að ráðist var á golfkúlusjálfsala við völlinn.

Þá tilkynnti eigendi gamallar vörubifreiðar á föstudag að brotist hefði verið inn í bifreiðina og stolið úr henni tjakk, sjónauka og ökuritaskífum. Bifreiðin hafði staðið óhreyfð frá því 10. nóvember síðastliðinn en hún var við íbúðarhús í Árbæjarhverfi norðan við Ölfusá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×