Davíð kallaði framsóknarmenn veimiltítur Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 23. nóvember 2007 18:48 Ævisaga Guðna Ágústssonar eftir Sigmund Erni kom út í dag.
Ný útgáfa að fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar dagaði uppi eftir leynifund Guðna Ágústssonar þáverandi varaformanns Framsóknarflokksins með forseta Íslands, þar sem fram kom að forsetinn myndi óhikað og afdráttarlaust hafna frumvarpinu. Þetta kemur fram í nýrri ævisögu Guðna. Guðni af lífi og sál heitir bókin sem kemur út í dag og er skrifuð af Sigmundi Erni Rúnarssyni. Þar er meðal annars ítarlega sagt frá því sem gerðist bakvið tjöldin í fjölmiðlamálinu sem skók þjóðina sumarið 2004 - einu mesta hitamáli síðari tíma í íslenskri pólitík. Frumvarpið kom flatt upp á ráðherra Framsóknar þegar Davíð Oddsson dró það fram á ríkisstjórnarfundi í apríl. Halldór verður svipþungur mjög og efast síðan um að frumvarpið standist stjórnarskrá, þá segist Guðna svo frá: "Davíð svarar honum strax og segir sessunaut sínum að laga þá bara frumvarpið sjálfur" og hendir síðan eintaki sínu af frumvarpinu í fang Halldórs. Eftirleikurinn er þekktur, þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendir frúna eina til að vera viðstödd brúðkaup í Danaveldi, kemur heim og synjar fjölmiðlalögunum staðfestingu í beinni útsendingu 2. júní 2004. Stjórnmálaheimurinn leikur á reiðiskjálfi á eftir, ríkisstjórnin dregur frumvarpið til baka, í stað þess vísa því til þjóðaratkvæðagreiðslu, en síðan er hafin vinna við að breyta frumvarpinu og í bókinni er ljóstrað upp um afdrif þess. Guðni og forsetinn eru gamlir félagar úr Möðruvallarhreyfingunni og því er Guðni sendur suður á Bessastaði til að kanna hug Ólafs: "Svarið er afdráttarlaust. Forsetinn gefur Guðna fastlega til kynna að hann muni hafna nýju lögunum." Ráðherrar Framsóknar ákveða þá að leggja frumvarpsdrögin til hliðar - og segja má að forsetinn hafi þar með hafnað lögunum tvisvar. Guðni tilkynnir Davíð Oddssyni afstöðu Framsóknarmanna, sem samkvæmt bókinni, "bregst reiður við", kallar framsóknarmenn "veimiltítur" og að Framsókn "sé að míga í sig af hræðslu". Daginn eftir er Davíð lagður inn á sjúkrahús og glímir næstu mánuði við erfið veikindi. Fjölmiðlamálið dagar uppi.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira