Innlent

Fundar um orku- og sjávarútvegsmál í Indónesíu

MYND/Valgarður

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra fundar á morgun með Susilo Bambang Yudhoyono, forseta Indónesíu, ásamt orkumálaráðherra landsins og sjávarútvegsráðherra.

Össur er nú staddur í Indónesíu og eftir því sem segir í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu er ætlunin að ræða mögulegt samstarf Indónesíu og Íslands á sviði jarðvarmaorkuvinnslu og fiskveiða, en miklir ónýttir fiskistofnar eru við strendur Indónesíu.

Ráðherrarnir munu einnig ræða aukið samstarf á sviði rannsókna og menntunar í tengslum við jarðhita, þar á meðal hugmynd um árleg námskeið fyrir jarðhitafræðinga frá Asíulöndum um rannsóknir og nýtingu jarðhita til raforkuframleiðslu, sem haldin yrðu í Indónesíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×