Innlent

Sakfelldur fyrir kannabisrækt

MYND/Páll Bergmann

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til að að greiða 120 þúsund krónur í sekt fyrir fyrir kannabisrækt og vörslu fíkniefna. Lögreglan gerði húsleit hjá manninum í maí síðastliðnum og fann þar fimm kannabisjurtir og lítilræði af amfetamíni og kannabis. Maðurinn mætti ekki fyrir dóm og var málið dómtekið og hann sakfelldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×