Innlent

Varðskip kom með Erling KE til hafnar í nótt

Úr safni.
Úr safni. MYND/365

Varðskip kom með fiskiskipið Erling KE til Hafnarfjarðar um fjögur leitið í nótt, eftir að hafa dregið það til lands í miklu hvassviðri og töluverðum sjógangi. Vélin bilaði í Erlingi þegar skipið var statt suðaustur af Malarrifi í gær.

Vindur stóð af landi þannig að það rak til hafs. Kallað var eftir aðstoð og vildi svo vel til að varðskip var ekki langt undan. Tókst að koma taug á milli skipanna, en hún slitnaði vegna veðurofsans. Rúmri klukkusutnd síðar tókst að koma tryuggari taug á milli, sem hélt alla leiðina. Níu menn eru í áhöfn Erlings og vour þeir ekki í hættu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×