Innlent

Féll fyrir borð á slöngubát

Björgunarsveitarmaður , sem var við æfingar, féll fyrir borð á slöngubáti á fullri ferð í Hofsvík við Kjalarnes laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Félagar hans fundu hann ekki í myrkrinu og kölluðu eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem var við æfingar við Akranes.

Maðurinn, sem var klæddur flotgalla, komst upp á sker og hringdi þaðan úr farsíma. Áhöfn þyrlunnar fann hann skömmu síðar og lýsti upp svæðið, þangað sem félagar hans komu og sóttu hann. Honum varð ekki meint af




Fleiri fréttir

Sjá meira


×