Innlent

Réttindalaus undir áhrifum fíkniefna

Réttindalaus ökumaður undir áhrifum fíkniefna, reyndi í nótt að stinga lögregluna af, en hafnaði á grindverki í vestanverðu Árbæjarhverfinu.

Áður hafði hann mælst á allt að 160 kílómetra hraða á Miklubrautinni, eftir að hafa ekið yfir gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar á rauðu ljósi. Þrátt fyrir mikið högg, þegar bíllinn lenti á grindverkinu, sakaði manninn ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×