Vankantar sniðnir af lögum um samgönguáætlun 10. október 2007 14:43 MYND/Pjetur
Til stendur að sníða af vankanta og laga einstök efnisatriði í lögum um samgönguáætlun á næstunni og hafa drög að lagafrumvarpi verið lögð fram vegna þessa. Fram kemur á vef samgönguráðuneytisins að breytingarnar á lögum um samgönguáætlun séu til komnar vegna breytinga sem orðið hafa á umhverfi samgöngumála, til dæmis með stofnun opinbers hlutafélags um flugvallarekstur og meiri áherslu á öryggismál. Meðal helstu breytinga í frumvarpinu er að gera á skýrar að samgönguáætlun er í raun ein áætlun til 12 ára og að fjögurra ára áætlun sé óaðskiljanlegur hluti hennar. Þá á með lagafrumvarpinu að leyfa endurskoðun á samgönguáætlun við upphaf nýs kjörtímabils og að tryggja að forstöðumenn allra samgöngustofnana sem heyra undir samgönguráðuneytið eigi sæti í samgönguráð ef breytingar verða á því hverjar stofnanirnar eru. Þá segir á vef samgönguráðuneytisins að ekki sé ætlunin að breyta markmiðum laga um samgönguáætlun og verður samgönguáætlunin endurskoðuð á tólf ára fresti en fjögurra ára áætlun endurskoðuð á tveggja ára fresti. Hægt er að gera athugsemdir við frumvarpið fram til 23. október en frumvarpið er hægt að nálgast á vef ráðuneytisins.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira