Hönnun glerhjúpsins langt komin 9. október 2007 20:57
Hönnun glerhjúpsins sem umlykja á Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfn er langt komin og hefur stjórn Austurhafnar-TR nú fallist á meginhugmyndir hönnuðanna. Beðið er með endanlegt samþykki þar til hugmyndir um litasetningu liggja fyrir en það mun verða á næstu vikum. „Frá því snemma í vor hafa hönnuðir Tónlistar- og ráðstefnuhússins, Henning Larsens Arkitektar og listamaðurinn Ólafur Elíasson, unnið að því að fullþróa útfærslu glerhjúpsins sem umlykja á húsið," segir í tilkynningu frá Austurhöfn-TR ehf. „Hefur hugmyndafræðin nú þróast í þá átt að hugsa sér að húsið sé unnið út úr stuðlabergsfjalli þar sem suðurhliðin er eins og brotin út úr fjallinu, þannig að stuðlarnir koma fram, en áferðin á hinum hliðunum þremur er eins og að skorið hafi verið í gegnum stuðlana." Þá segir að gluggapóstarnir myndi mynstur sem mótast af stuðlunum en er háð því horni sem skurðflöturinn myndar við stuðlabergið. „Þannig eru allar hliðar hússins hugsaðar út frá sömu hugmynd og samskeyti á hornum hússins virka eðlileg. Á hluta norðurhliðar verður glerið þá ekki lengur í formi eiginlegs stuðlabergs, eins og áður var ráðgert, en mótar þess í stað form sem byggir á hugmyndinni um þverskorið stuðlaberg. Austur- og vesturhliðar hússins hafa verið sýndar sem venjulegir glerveggir en nú verður glerið í þeim mótað í sama form, þ.e. sem þverskorið stuðlaberg, nema þar sem hlutabyggingar stinga sér út úr glerfletinum,"segir einnig í tilkynningunni. Þessar lausnir voru kynntar stjórn Austurhafnar á kynningarfundi í síðustu viku en þá vantaði þó enn tillögur Ólafs Elíassonar um litasetningu og spegilgler. Þær munu vera væntanlegar á næstu vikum og þá verður málið tekið fyrir til endanlegrar afgreiðslu.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira