Innlent

Hönnun glerhjúpsins langt komin

Hönnun glerhjúpsins sem umlykja á Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfn er langt komin og hefur stjórn Austurhafnar-TR nú fallist á meginhugmyndir hönnuðanna. Beðið er með endanlegt samþykki þar til hugmyndir um litasetningu liggja fyrir en það mun verða á næstu vikum.

„Frá því snemma í vor hafa hönnuðir Tónlistar- og ráðstefnuhússins, Henning Larsens Arkitektar og listamaðurinn Ólafur Elíasson, unnið að því að fullþróa útfærslu glerhjúpsins sem umlykja á húsið," segir í tilkynningu frá Austurhöfn-TR ehf. „Hefur hugmyndafræðin nú þróast í þá átt að hugsa sér að húsið sé unnið út úr stuðlabergsfjalli þar sem suðurhliðin er eins og brotin út úr fjallinu, þannig að stuðlarnir koma fram, en áferðin á hinum hliðunum þremur er eins og að skorið hafi verið í gegnum stuðlana."

Þá segir að gluggapóstarnir myndi mynstur sem mótast af stuðlunum en er háð því horni sem skurðflöturinn myndar við stuðlabergið. „Þannig eru allar hliðar hússins hugsaðar út frá sömu hugmynd og samskeyti á hornum hússins virka eðlileg. Á hluta norðurhliðar verður glerið þá ekki lengur í formi eiginlegs stuðlabergs, eins og áður var ráðgert, en mótar þess í stað form sem byggir á hugmyndinni um þverskorið stuðlaberg. Austur- og vesturhliðar hússins hafa verið sýndar sem venjulegir glerveggir en nú verður glerið í þeim mótað í sama form, þ.e. sem þverskorið stuðlaberg, nema þar sem hlutabyggingar stinga sér út úr glerfletinum,"segir einnig í tilkynningunni.

Þessar lausnir voru kynntar stjórn Austurhafnar á kynningarfundi í síðustu viku en þá vantaði þó enn tillögur Ólafs Elíassonar um litasetningu og spegilgler. Þær munu vera væntanlegar á næstu vikum og þá verður málið tekið fyrir til endanlegrar afgreiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×