Innlent

Brjóta þjófavarnir af varningi og stela

Lögregla fer nú yfir hvaðan þýfið er komið.
Lögregla fer nú yfir hvaðan þýfið er komið. MYND/GVA

Svo virðist sem Litháarnir, sem eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um stórfelldan þjófnað í verslunum hér á landi, brjóti í einhverjum tilvikum þjófavörn af varningi og komi honum þannig út úr verslunum.

Meðal þeirra fyrirtækja sem urðu fyrir barðinu á þjófagenginu var 66 gráður norður, en í fréttum í gær mátti sjá fjölmargar flíkur frá fyrirtækinu á meðal varnings sem lögregla gerði upptækan í húsleit í gær.

Kristín Andrea Einarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá 66 gráðum norður, segir að ekki liggi fyrir hvert sé andvirði þess fatnaðar sem Litháarnir eiga að hafa stolið. Hins vegar sé ljóst að um sé að ræða dýrari vörur í verslunum fyrirtækisins, útivistavörur sem kosti á bilinu 30-40 þúsund krónur stykkið. Aðspurð segir hún að svo virðist sem þjófarnir hafi látið til skarar skríða í öllum verslunum félagsins í borginni.

Aðspurð hvernig mennirnir hafi komist út með vörurnar segir Kristín að svo virðist sem þeir brjóti þjófavarnir af flíkunum. „Við höfun fundið brotnar þjófavarnir í mátunarklefum," segir hún.

Kristín segir enn fremur að í kjölfar þessa máls verði farið yfir þjófavarnir í verslununum og hugsanlega leitað nýrra leiða. Þarna hafi verið atvinnuþjófar á ferð eins og fram hafi komið hjá lögreglunni.

Stöðvuðu póstsendingar til Litháens

Eins og fram hefur komið hafa 14 Litháar verið handteknir vegna þjófnaðanna sm ná til ýmissa verslana á höfuðborgarsvæðinu. Hafa sjö þeirra þegar verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í viku. Grunur leikur á þeir hafi ætlað að senda þýfið til Litháens.

Ómar Smári Ármannsson, yfirmaður auðgunarbrota hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að lögreglan hafi stöðvað póstsendingar sem áttu að fara til Litháens og lögreglan þar í landi rannsaki nú hverjir standi fyrir sölu þýfisins þar.

Ómar segir ekki vitað hvort mennirnir séu löglegir í landinu en ljóst sé að þeir hafi ekki stundað reglubundna vinnu. Sumir þeirra hafi komið við sögu lögreglu bæði erlendis og hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×