Innlent

Brim segir aðstæður á Akureyri illþolanlegar

"Aðstæðurnar sem okkur eru skapaðar á Akureyri í dag eru illþolanlegar fyrir þróttmikla starfsemi hvort sem hún tengist sjávarútvegi eða öðrum atvinnugreinum og veldur slagsíðu sem er óþörf með öllu og einungis til trafala," segir í niðurlagi yfirlýsingar sem Brim hefur sent frá sér vegna "endurtekinna hrópa" um starfsemi fyrirtækisins í bænum.

Fjallað er um skerðingu þorskkvótans og segir í yfirlýsingunni að þó að þessi skerðing muni hafa veruleg áhrif á framleiðslu Brims á Akureyri, þá er mikilvægt að fram komi að heildarframleiðsla landvinnslunnar á Akureyri hefur verið nær sú sama frá árinu 1998 til 2006, með óverulegum frávikum en til dæmis má nefna að árið 2001 var unnið úr 8.600 tonnum af fiski. Árið 2006 var unnið úr 9.000 tonnum af fiski og núna, fyrstu 8 mánuði þessa árs er búið að vinna úr tæpum 6000 tonnum af fiski í landvinnslunni á Akureyri.

Síðan segir: "Í þau fjögur ár sem liðin eru frá því þeir Snæfellingar sem keyptu ÚA hafa rekið eininguna á Akureyri, hefur örðugast reynst að hafa sæmilegan vinnufrið til starfans. Stöðugur áróður formanns Sjómannafélags Eyjafjarðar er þegar hingað er komið, meiri ógn við byggðina og fólkið í vinnslunni en nokkuð annað og hörmulegt að fjölmiðlar taki undir og ali á þeim ímyndaða kvíðboga sem slíkur málflutningur óneitanlega hefur í för með sér.

Við hljótum að velta vöngum yfir því hvað heimamönnum gengur til með þessum upphrópunum, við höfum skilning á viðhorfum eldri kynslóðarinnar um heimastað kvótans en eigum illmögulegt með að skilja hvers vegna slík óvissa er sköpuð fólkinu í fyrirtækinu.

Í þau ár sem Brim hefur starfað og á þeim stöðvum sem Brim hefur verið, hefur hvergi neitt þessu líkt sést eða heyrst og reikna má með því að hér sé um einsdæmi að ræða. Samskipti við önnur sjómannafélög eru undantekningalaust fagleg og í samræmi við heilbrigðar starfsreglur sem settar eru milli útgerðar og sjómannafélaga."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×