Brim segir aðstæður á Akureyri illþolanlegar 4. október 2007 12:06 "
Aðstæðurnar sem okkur eru skapaðar á Akureyri í dag eru illþolanlegar fyrir þróttmikla starfsemi hvort sem hún tengist sjávarútvegi eða öðrum atvinnugreinum og veldur slagsíðu sem er óþörf með öllu og einungis til trafala," segir í niðurlagi yfirlýsingar sem Brim hefur sent frá sér vegna "endurtekinna hrópa" um starfsemi fyrirtækisins í bænum. Fjallað er um skerðingu þorskkvótans og segir í yfirlýsingunni að þó að þessi skerðing muni hafa veruleg áhrif á framleiðslu Brims á Akureyri, þá er mikilvægt að fram komi að heildarframleiðsla landvinnslunnar á Akureyri hefur verið nær sú sama frá árinu 1998 til 2006, með óverulegum frávikum en til dæmis má nefna að árið 2001 var unnið úr 8.600 tonnum af fiski. Árið 2006 var unnið úr 9.000 tonnum af fiski og núna, fyrstu 8 mánuði þessa árs er búið að vinna úr tæpum 6000 tonnum af fiski í landvinnslunni á Akureyri. Síðan segir: "Í þau fjögur ár sem liðin eru frá því þeir Snæfellingar sem keyptu ÚA hafa rekið eininguna á Akureyri, hefur örðugast reynst að hafa sæmilegan vinnufrið til starfans. Stöðugur áróður formanns Sjómannafélags Eyjafjarðar er þegar hingað er komið, meiri ógn við byggðina og fólkið í vinnslunni en nokkuð annað og hörmulegt að fjölmiðlar taki undir og ali á þeim ímyndaða kvíðboga sem slíkur málflutningur óneitanlega hefur í för með sér. Við hljótum að velta vöngum yfir því hvað heimamönnum gengur til með þessum upphrópunum, við höfum skilning á viðhorfum eldri kynslóðarinnar um heimastað kvótans en eigum illmögulegt með að skilja hvers vegna slík óvissa er sköpuð fólkinu í fyrirtækinu. Í þau ár sem Brim hefur starfað og á þeim stöðvum sem Brim hefur verið, hefur hvergi neitt þessu líkt sést eða heyrst og reikna má með því að hér sé um einsdæmi að ræða. Samskipti við önnur sjómannafélög eru undantekningalaust fagleg og í samræmi við heilbrigðar starfsreglur sem settar eru milli útgerðar og sjómannafélaga."
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira